Við vitum hversu mikilvægur þáttur ráðningar eru í rekstri fyrirtækja og leggjum allt í að tryggja að hæfasti umsækjandinn sé ávallt raðinn í hvert einasta starf.
Sífellt auknar kröfur eru gerðar til stjórnenda í upplýsingasamfélaginu og mikil þróun hefur átt sér stað í öllu umhverfi fyrirtækja. Það sem einkennir góða stjórnendur breytist því í takt við tíðarandann. Þetta vitum við eftir öll þessi ár í stjórnendaráðningum á Íslandi.
Við tökum að okkur ráðningar í allar tegundir starfa og sníðum þjónustuna að mismunandi þörfum fyrirtækja með það að leiðarljósi að finna og ráða hæfasta einstaklinginn hverju sinni.
Við veitum margs konar ráðgjöf á sviði þjálfunar og þróunar mannauðs. Eins og í öllu sem við gerum þá leggjum við áherslu á persónulega ráðgjöf og viljum hjálpa okkar viðskiptavinum að móta hvetjandi starfsumhverfi og innleiða þrautreyndar aðferðir til að bæta frammistöðu og forðast vandamál sem gætu komið upp.
Vefsíða notar vefkökur (e. cookies) vegna nauðsynlegrar virkni hennar og til að safna tölfræðigögnum með þeim tilgangi að gera síðuna betri. Lesa meiraLeyfa vefkökur